
Sterk ímynd,
meiri sýnileiki,
betri árangur.
Hvað bjóðum við upp á?
Stafræn markaðsetning
Samfélagsmiðlar og stafræn markaðssetning er orðin ein mikilvægasta tengingin milli fyrirtækja og viðskiptavina. Því skiptir máli að röddin, útlitið og sagan sem þú segir sé skýr, stöðug og í takt við markmiðin þín.
Við nýtum öflugt auglýsingakerfi Meta (Facebook & Instagram) til að ná til réttra markhópa. Rétt uppsettar og vel hannaðar herferðir geta aukið vitund, byggt upp ímynd og skapað ný viðskiptatækifæri.
Með Google Ads birtist fyrirtækið þitt þegar fólk er virkt í leit að vörum eða þjónustu eins og þeirri sem þú býður uppá. Með markvissri miðun, stöðugri bestun og skýrum skilaboðum tryggjum við að fjárfestingin í auglýsingum skili hámarksárangri.
Umsjón samfélagsmiðla
Við sjáum um skipulag, áætlanir og daglega umsjón samfélagsmiðla.
Með stöðugu flæði, vönduðu efni og skýrri stefnu tryggjum við að rödd fyrirtækisins sé samræmd, lifandi og í takt við markmiðin þín.
Ljósmyndun & framleiðsla
Góður árangur byggir á góðu efni. Við sérhæfum okkur í vandaðri ljósmyndun og myndbandagerð fyrir fyrirtæki sem endurspegla karakter vörumerkja og tengja viðskiptavini við fyrirtækið. Efnið er sniðið að miðlunum sem það birtist á og styður bæði við ímynd og árangur.
-
Auglýsingaljósmyndir
-
Vörumyndir
-
Portrett / Starfsmannamyndir
-
Matarljósmyndir
-
Fasteignamyndir
-
Video framleiðsla
-
Auglýsingar
-
Markaðsefni
-
Viðburðir
-
Leikstjórn
-
Framleiðsla
-
Samvinna við hönnuði og auglýsingastofur


